Fara í meginmál
VELDU ÞIGLífsþjálfun
Skilmálar

Skilmálar þjónustunnar

Um bókanir, greiðslur, afbókanir og upptökur. Endilega hafðu samband ef eitthvað er óljóst.

Um þjónustuna

Veldu þig veitir lífsþjálfun í formi einstaklingstíma, hópþjálfunar, fyrirlestra og námskeiða. Lífsþjálfun er ekki heilbrigðisþjónusta og kemur ekki í stað læknismeðferðar, sálfræðimeðferðar eða annarrar heilbrigðisþjónustu.

Bókanir

Bókun telst gild þegar staðfesting hefur borist í tölvupósti. Ef lota er fullbókuð fer bókunin á biðlista og við höfum samband um leið og pláss losnar.

Námskeið og hópþjálfun þurfa lágmarksfjölda þátttakenda. Náist hann ekki áskiljum við okkur rétt til að fresta eða fella lotu niður og endurgreiða að fullu.

Verð og greiðslur

Verð eru birt í íslenskum krónum og eru endanleg. Starfsemi Veldu þig er ekki virðisaukaskattsskyld og því leggst enginn virðisaukaskattur ofan á uppgefin verð.

Greitt er með korti í gegnum greiðslugátt Teya þegar bókað er, eða með millifærslu samkvæmt upplýsingum sem fylgja staðfestingarpóstinum. Við geymum aldrei kortanúmer. Ógreidd bókun fellur niður að liðnum greiðslufresti og plássið losnar.

Afbókanir

Þú getur afbókað einstaklingstíma allt að 24 klukkustundum fyrir tímann og færð þá fulla endurgreiðslu. Sé afbókað síðar fellur gjaldið niður, enda hefur tímanum þá verið haldið frá öðrum.

Forfallist þú vegna veikinda reynum við eftir fremsta megni að finna nýjan tíma í stað þess að fella gjaldið niður.

Fyrir námskeið, hópþjálfun og fyrirlestra er hægt að afbóka með fullri endurgreiðslu allt að sjö dögum fyrir fyrsta tíma. Eftir það er ekki endurgreitt.

Ef við fellum lotu niður, frestum henni eða náum ekki lágmarksfjölda þátttakenda endurgreiðum við alltaf að fullu.

Þú getur afbókað sjálf/ur í gegnum hlekkinn í staðfestingarpóstinum.

Klippikort

Klippikort er fyrirframgreiddur fjöldi tíma í tiltekinni þjónustu á lægra verði. Klippin gilda í þann tíma sem tilgreindur er við kaup og ónotuð klipp falla niður að honum liðnum. Klippikort eru ekki endurgreidd, hvorki að hluta né í heild.

Um afbókun tíma sem greiddur er með klippi gilda sömu afbókunarreglur og að ofan: sé afbókað innan frests fer klippið aftur á kortið, annars telst það notað. Fellum við tímann niður fer klippið alltaf aftur á kortið.

Upptökur

Tímar sem fara fram á Zoom eru teknir upp. Upptökur eru eingöngu gerðar svo þátttakendur geti horft á tímann aftur. Þær eru hvorki notaðar í markaðsstarfi, við kennslu annarra hópa né til gæðamats á starfsfólki. Aðgang að upptöku hafa aðeins þeir sem tóku þátt í tímanum og þjálfarar Veldu þig.

Upptökur eru geymdar í tólf mánuði frá upptökudegi og er þeim þá eytt sjálfkrafa. Þú getur hvenær sem er óskað eftir að upptöku sem þú komst fram í verði eytt fyrr.

Með því að bóka tíma samþykkir þú að hann kunni að vera tekinn upp. Láttu okkur vita fyrir tímann ef þú vilt það ekki.

Trúnaður

Það sem fer fram í tímum er trúnaðarmál. Undantekningar frá trúnaði eru einungis þessar:

  • Þegar okkur ber lagaskylda til að tilkynna, svo sem tilkynningarskylda til barnaverndar.
  • Þegar bráð hætta er á lífi eða heilsu, hvort sem er þinni eða annarra.
  • Þegar dómsúrskurður liggur fyrir.

Ábyrgð

Lífsþjálfun er samstarf og árangur ræðst meðal annars af þátttöku þinni. Við ábyrgjumst ekki tiltekinn árangur af þjálfuninni.

Veldu þig ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem tekjumissi eða afleiddu tjóni. Bótaábyrgð Veldu þig takmarkast við þá fjárhæð sem greidd var fyrir þá þjónustu sem krafan varðar.

Ekkert í skilmálum þessum takmarkar ábyrgð sem óheimilt er að takmarka samkvæmt lögum.

Breytingar á skilmálum

Við kunnum að breyta þessum skilmálum. Breytingar taka gildi þegar þær eru birtar hér.

Síðast uppfært mið., 9. september.